|
Bragðgóður og hollur réttur fyrir 4. Með graskeri og Linsubaunum
Fyllta Graskerið Innihald - 1stk Grasker
- 4stk Vorlaukur
- 1/2 Kúrbítur grænn eða gulur
- 1 gulrót
- 1/2dl Graskersfræ
- 1/4stk ferskt fennel
- 4-6 litlar kartöflur
- 1tsk Oregano þurrkað annars 2-3 stilkar ferskir
- 1/2 tsk þurrkað chilliduft eða 1 ferskur chilli frá Akri
- 1 lauf hvítlauku, kreistur
- 2 msk olía
Graskerið er skorið í 4 parta og fræhreinsað, hýðið getur verið á. Setjið Graskerið síðan til hliðar. Vorlaukurinn, kúrbíturinn, Gulrótin, kartöflurnar eru skornar í litla bita og hvítlaukurinn er kreistur og öllu er síðan blandað saman ásamt kryddinu og olíuni. Setjið síðan fyllinguna í Graskershólfin. Linsubauna Botn Innihald - 2dl rauðar Linsubaunir
- 3dl vatn
- pipar og jurtasalt
- 2 tómata, sneiddir
- 2tsk Basil
- 1/2 búnt Steinselja
- 100gr ostur
Linsubaunirnar eru settar í botnin á ofnformi. Vatninu helt yfir og kryddinu blandað við. Settu núna tómatana yfir linsurnar og síðan basil yfir þá. Legðu núna Graskerið ofan á linsubaunirnar og stráðu ostinum yfir, skreyttu með steinseljun. Bakaðu í ofni á 150-160gr í 40mín. Borið fram með lífrænum brúnum hrísgrjónum og sýrðum gulrótum frá akri eða öðru salati. Einnig er gott að blanda 1-2 tsk af chilli mauki saman við lífræna hreina jógúrt eða gríska jógúrt. Njótið og verði ykkur að góðu. |