|
Námskeið - Frá Jarðvegi til Maga Wendy Cook, höfundur bókanna Biodynamic Cookbook og Foodwise mun halda námskeið á Sólheimum dagana 17. til 19. júlí. Wendy er virtur fyrirlesari og heldur fjölda námskeiða ár hvert þar sem hún leggur megináherslu á biodynamísk/lífrænt ræktaða fæðu, auk samsetningar á mat.
Námskeiðið er á ensku. Kostnaður: Þátttökugjald og hráefni kr. 18.000 Gisting kr. 4.000 per nótt. Morgunmatur kr. 1.100. Hádegisverður kr. 1.250. Kvöldverður er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Nánari upplýsingar og skráning: Guðmundur Ármann
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
eða sími 480-4401 Dagskrá: Föstudagur 17. Júlí. Kl. 20.00 Fyrirlestur. Þróun matar og meðvitundar einstaklingsins – Sesseljuhús. Laugardagur 18 júlí. Kl. 08.00 Morgunmatur – Vigdísarhús. Kl. 09.00 Kynning á þátttakendum – Sesseljuhús. Kl. 09.45 Hvernig á að undirbúa málsverð þar sem tekið er tillit til rótar, laufs, stilks og ávaxtar. Kl. 11.00 Kaffi – Vigdísarhús. Kl. 11.30 Spurning um gæði, samanburður á lífelft/lífrænt ræktuðum mat og kemískt ræktuðum mat og tengsl þess við þrískiptingu manneskjunnar. Að skera grænmeti – list og vísindi. Kl. 13.00 Hádegisverður – gönguferð - tónleikar. Kl. 15.00 Matur undirbúinn og eldaður í sameiningu. Eldaðar verða uppskriftir úr bók Wendy, The biodynamic cookbook. Sameiginlegur kvöldverður. Kl. 20.00 Sýnd verður kvikmyndin, The biodynamic gardening film – Sesseljuhús. Sunnudagur 19 júlí. Kl. 08.30 Morgunmatur – Vigdísarhús. Kl. 09.30 Vigdísarhús. - Notkun jurta í eldamennsku. - Korn, hvernig það er gert auðmeltanlegt og aðlaðandi. - Sósur. - Hin félagslegur áhrif þess að borða saman. Kl. 12.00 Hádegisverður og námskeiðslok. |