|
Lífrænn úrgangur til landbóta - óþefur eða auðlind? |
|
Tuesday, 17 November 2009 15:14 |
|
Málþing í Gunnarsholti, fimmtudaginn 26. nóvember kl. 10:00-16:00. Fjallað verður um möguleika og takmarkanir sem felast í nýtingu lífræns úrgangs til að bæta landkosti.
Þátttaka er ókeypis. Boðið er upp á léttan hádegisverð. Tilkynna þarf þátttöku í síðasta lagi þriðjudaginn 24. nóvember, á netfangið
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
Dagskrá málþingsins er hér að neðan og í viðhengi.
10.00-10.10 Setning. Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri. Ávarp frá umhverfisráðuneyti.
10.10-10.30 Lög um förgun og meðhöndlun lífræns úrgangs. Gunnlaug Einarsdóttir, Umhverfisstofnun. Fyrirspurnir og athugasemdir.
10.30-11.20 Framboð, áburðargildi og meðhöndlun lífrænna hráefna. Seyra og slóg. Birgir Þórðarson, Heilbrigðiseftirliti Suðurlands. Búfjáráburður, hey, sláturúrgangur. Garðar Þorfinnsson, Landgræðslunni. Næringargildi lífræns áburðar. Hreinn Óskarsson, Skógrækt ríkisins. Fyrirspurnir og athugasemdir.
11.20-12.30 Takmarkanir og möguleikar á notkun lífræns áburðar. Smithætta og mengun. Auður Lilja Arnþórsdóttir, Matvælastofnun. Flutningur og dreifing. Guðmundur Stefánsson, Landgræðslunni. Lífrænn áburður í nútíma samfélagi. Guðmundur Tryggvi Ólafsson, Sorpstöð Suðurlands. Fyrirspurnir og athugasemdir.
12.30-13.30 Matarhlé.
13.30-14.20 Nýting lífræns áburðar í landbúnaði og landgræðslu. Guðmundur Stefánsson, Hraungerði. Björn Hilmarsson, Hafnarfjarðarbæ. Gústav M. Ásbjörnsson, Landgræðslunni. Björn Guðbrandur Jónsson, Gróðri fyrir fólk í landnámi Ingólfs. Fyrirspurnir og athugasemdir.
14.20-15.40 Almennar umræður.
15.40-16.00 Samantekt og málþingsslit.
Fundarstjórar: Ágúst Sigurðsson rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Elín Fjóla Þórarinsdóttir, Landgræðslunni.
|